Fćrsluflokkur: Bloggar

Dokkuferđin 2008

Ég er svo lánssamur ađ eiga góđa vini.  Eins og gengur skiptast ţeir í hópa eftir ţví hvernig ţeir tengjast manni; gamlir skólafélagar, gamlir vinnufélagar, gamlir skátafélagar, gamlar kćrustur, fyrrverandi tengdamćđur og svo mćtti lengi telja ;-)

Um síđustu helgi hittumst viđ nokkrir gamlir vinnufélagar úr Nýherja sem hafa haldiđ hópinn núna í rúmlega áratug ţrátt fyrir ađ margir úr hópnum séu ekki lengur starfandi hjá félaginu.  Viđ köllum okkur "Táfýluklúbbinn" og án ţess ađ skýra ţá nafngift nánar hér skal ţađ ţó tekiđ fram ađ ţessi félagsskapur er meiriháttar - viđ eigum fastan punkt í tilverunni sem er ein útilega á ári í sumarbústađ ađ Međalfellsvatni sem ber nafniđ Dokkan og er paradís á jörđ.  Viđ félagarnir höfum komiđ saman árlega á ţessum góđa stađ um margra ára skeiđ, notiđ góđs matar, frábćrs umhverfis en fyrst og síđast félagsskapar hvers annars.

Síđustu helgi tók ég nokkrar myndir sem ég bćtti hér í myndasafniđ á blogginu og ég vona ađ ţetta komist vel til skila.

kv, gp


Hvunndagshetjan mín

Ég kynntist stúlku fyrir nokkrum árum sem heitir Embla.  Stúlku sem ég tengist á margan hátt.  Gúu mömmu hennar hef ég ţekkt í hundrađ ár, Agnes Braga frćnka hennar hefur veriđ kćr vinur minn um langt skeiđ og svo mćtti lengi telja en leiđir okkar Emblu lágu fyrst fyrir einhverja alvöru saman núna í vikunni ţegar hún leiddi til sín nokkra hljóđfćraleikara til ađ leika undir sínum fyrstu einsöngstónleikum.

Embla hefur stundađ söngnám hjá Ernu Blöndal sl. tvö ár og ţar sem Embla er gríđarleg keppnismanneskja ákváđu ţćr stöllur ađ setja sér markmiđ og slútta vorönninni međ tónleikum og ţeir fóru fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirđi í gćrkvöldi.

Slíkir tónleikar eru ţví miđur sjaldnast í fréttum en ţessir tónleikar eiga svo sannarlega skiliđ ađ fá umfjöllun ţví frammistađa Emblu og verkefniđ allt í heild sinni er hvatning til okkar allra um ađ láta drauma okkar rćtast.

Embla hefur ekki látiđ deigan síga ţrátt fyrir líkamlega fötlun sína og andlegt atgervi hennar, kraftur, ţrek og ţor er ađdáunarvert og okkur öllum til eftirbreytni.

Á ţessum tónleikum flutti Embla nokkur vel valin lög af sínum persónulega óskalista.  Flest áttu ţau ţađ sammerkt ađ snúast um ást, von og kćrleika og ţví var Fríkirkjan í Hafnarfirđi fallegur vettvangur fyrir ţau skilabođ Emblu til okkar allra.

Sem fyrr segir hefur Embla stundađ nám hjá Ernu Blöndal sl. tvö ár og var ţví vel viđ hćfi ađ ţćr stöllu tćkju saman lagiđ á tónleikunum.

Međleik önnuđust ţau:
Örn Arnarson - gítar
Ađalheiđur Ţorsteinsdóttir - píanó
Ţorvaldur Ţorvaldsson - trommur
Guđmundur Pálsson - bassi
embla

Ađ láta til leiđast

Ég hitti nafna minn Jónsson í dag og viđ rćddum ţessi bloggmál - ég fékk hvatningu frá honum ađ prófa mig á ţessu sviđi en ég hef alltaf veriđ hálfneikvćđur á ţetta og ekki fundist viđ hćfi ađ fólk vćri ađ bera atburđi síns persónulega lífs á torg.

Hinsvegar er ţetta auđvitađ ekki galin vettvangur til ađ koma skođunum sínum um menn og málefni á framfćri og á ţeim nótum hef ég ákveđiđ ađ kynna mér betur ţessa tćkni og hver veit nema ég verđi virkur á ţessum vettvangi í vetur.


Nú étur mađur hattinn sinn!

Hmmm - jćja, ţá er ég allavega komin međ bloggsíđu, hvađ sem líđur fyrri fyrirheitum.  Á eftir ađ stilla ţetta og stađfćra.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband